25.12.2008 | 01:26
Túlkun skattsins stenst ekki
Held að þessi gjörningur Skattsins standist ekki. Skuldirnar voru ekki afskrifaðar eins og segir í fréttablaði Skattsins, heldur var persónuleg ábyrgð starfsmanna felld niður. Held að síðan verði lánið innheimt á þau veð sem fyrir hendi eru, þ.e. verðlaus bréf í bankanum. Niðurfelling persónulegrar ábyrgðar hlýtur að vera jafngildi skuldbreytingar en ekki launa.
Sambærilegt við þetta væri t.d. það að vera með óverðtryggt ISK lán á húsinu sínu með 20% vöxtum og skuldbreyta því svo yfir í erlent lán á 5% vöxtum. Skuldarinn er augljóslega að fá betri vaxtakjör á lánið sitt og ætti því að borga tekjuskatt af mismuninum, skv. túlkun Skattsins. Enn skýrara dæmi væri ef skuldarinn gengi inn til síns útibússtjóra og semdi um lægri vexti á upprunalega láninu. 20% vextir breytast í 10% vexti skv. samkomulagi. Er það tekjuskattsskylt ef skuldarinn er starfsmaður bankans?
Ef þessir stjórnendur þurfa að greiða tekjuskatt af upphæð þessara lána þá jafngildir það gjaldþroti. Skv. fréttum eru þetta um 50 milljarðar hjá nokkrum lykilstjórnendum. Skv. fréttum hefur komið fram að enginn af þessum lykilstjórnendum hefur innleyst hagnað af þessum bréfum, sem þýðir að þetta var allt saman pappírsgróði og gjaldþrot blasir við öllu þessu liði.
|
Niðurfelling til stjórnenda Kaupþings tekjuskattskyld |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2008 | 17:41
Ábyrgð Seðlabankans var þessi:
Seðlabankinn bar ábyrgð á:
1. Verðbólga um 2,5%: Tókst ekki
2. Fjármálastöðugleiki: Tókst ekki
3. Trúverðugur gjaldmiðill: Tókst ekki
4. Stöðugur gjaldmiðill: Tókst ekki
5. Peningum í umferð og peningamargfaldara (bindiskyldu): Rangt beitt
6. Gjaldeyrisforði: Of lítill
7. Rétt gengisskráning ISK: Aldrei
8. Eftirlit með fjármálastarfsemi: Greinilega ekki gott
Davíð sjálfur sagði ítrekað að krónan væri of sterkt skráð. Hann sagði einnig að gjaldeyrisforðinn væri of lítill. Sem Seðlabankastjóri hafði hann völd og bar ábyrgð á því að laga einmitt þessa hluti. Hann hefði getað prentað íslenskar krónur og keypt gjaldeyri. Með því hefði hann byggt upp gjaldeyrisforða (liður 6) og veikt krónuna (liður 7). Vissulega hefði það valdið verðbólgu, en sú verðbólga hefði komið hvort eð er vegna halla á viðskiptajöfnuði.
Davíð gagnrýndi ódýrt fjármagn og að of hratt væri farið í fjármálastarfsemi. Af hverju lækkaði hann þá bindiskyldu og gerði fjármagnið enn ódýrara?
Davíð reynir nú að varpa ábyrgð frá Seðlabankanum yfir á FME. Seðlabankinn hafði þó fulltrúa í stjórn FME og situr hann þar enn.
Ekkert af því sem Seðlabankinn bar ábyrgð á var rétt gert. Hver ber ábyrgð á því? Var þetta allt einhverjum öðrum að kenna? Davíð er hæstlaunaðasti ríkisstarfsmaðurinn, fyrir utan forsetann (bankastjórarnir eru ekki ríkisstarfsmenn heldur starfa hjá hlutafélögum). Hann segist bera ábyrgð. Hver er hún? Er ábyrgðin bara að koma fram með fréttatilkynningu þar sem tilkynntir eru stýrivextir Seðlabankans? Ber hann ekki ábyrgð á afleiðingum þessara ákvarðanna?
Seðlabankinn bar EKKI ábyrgð á:
a. Að koma með fréttaskýringar á falli bankanna
b. Að koma með fréttaskýringar um ábyrgð FME
c. Að koma með fréttaskýringar um óreiðumenn og skuldir þeirra
d. Að koma með fréttaskýringar um ábyrgð ráðherra
Davíð Oddsson hefur tekið að sér að uppfylla a-d. Með því að klúðra algerlega liðum 1-8 sem hann bar ábyrgð á, og með því að gera gera sjálfan sig pólitískan með því að taka að sér liði a-d er trúverðugleiki hann enginn. Það skiptir engu máli hvort hann gerði mistök eða ekki.
Davíð! Ég hef ekki trú að þér sem Seðlabankastjóra
Davíð! Ég hef ekki trú að þú vinnir faglega og óháð
Davíð! Ég hef ekki trú á að þú getir reist við íslensk fjármálalíf
Davíð! Ég treysti þér ekki!
Ég gæti allt eins trúað þér til að bíða með efnahagslega endurreisn Íslands þar til Baugsveldið er fallið. Mér er skítsama um Baugsveldið og vil byrja uppbyggingu strax! Ég treysti þér ekki til þess að byrja strax!
Davíð! Segðu af þér, fyrir Ísland!
|
Fréttaskýring: Vígreif varnarræða seðlabankastjóra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2008 | 12:46
Axlið ábyrgð!
Því var lýst yfir að ekki væri hægt að fjalla um IMF málið á Alþingi, því trúnaður vegna skilmálanna væri slíkur að ekki mætti birta neitt fyrr en stjórn IMF hefði fjallað um málið.
Nú er þessu lekið, eins og öllu öðru hjá ríkisstjórn, FME og Seðlabanka. Hver axlar ábyrgð á þessu? Ef lekinn finnst ekki, hljóta það að vera ráðherrar! Annað hvort finnst þessi leki eða einhver ráðherra segir af sér. Það er kominn tími á ábyrgð!!
|
„Eftir öðru að þjóðin fái upplýsingar með þessum hætti“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2008 | 22:10
NBI með 150ma í FV eignum?
Ég sem hélt að það hafi átt að nota eignir LAIS til að greiða upp ICESAVE skuldina! Hvað í andskotanum eru þeir að taka verðbréf með sér yfir í nýjan banka? Af hverju urðu þau ekki eftir í gamla hræinu til að borga ICESAVE?
240ma í sjóð og innistæðum hjá SÍ? 90ma í lán til lánastofnanna? Djöfulsins rugl!
200ma eiginfé sem cash skil ég, en þá eru eftir 150ma verðbréf+90ma lán til lánastofnanna+40ma cash. 280ma sem áttu að fara upp í ICESAVE.
NBI er strax orðið bloated skrýmsli. Djöfulsins græðgi í skilanefndinni! Ef það fellur króna á ríkið út af ICESAVE, þá eru þarna 280ma sem ég sakna!
|
FME birtir bráðabirgðatölur um efnahag bankanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 14:30
Úff, og síðan danskur tekjuskattur af því
|
Vann 1,2 milljarða króna í póker |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.11.2008 | 11:33
Hún hættir í pólitík greyið
Alveg ótrúlegt hvað hún er vitlaus þessi blessaða gæs. Ekki nóg með að hún gefi skít í alla þá sem ráða í flokknum, heldur gefur hún í raun skít í málefnin líka. Segir beint út að kjósendur hafi hafnað því sem flokkurinn stendur fyrir.
Af hverju sagði hún ekki einfaldlega að Obama hefði staðið sig afburðavel í kosningabaráttunni og nú þyrfti hann að sanna að hann gæti verið góður forseti líka? Það er betra að tapa vegna þess að andstæðingurinn var góður en ekki vegna þess að þú og þinn flokkur var vanhæfur.
Hún er hætt og mun aldrei sjást utan Alaska aftur. Ætli vegabréfið verði ekki tekið af henni líka!
|
Palin eignar stjórn Bush ósigurinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 00:24
6 mánuðir?
|
Dregur úr tapi deCODE |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2008 | 10:09
Þiggjum aðstoð IMF. Strax!
|
IMF lýsir vilja til að aðstoða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2008 | 18:37
Innlánin eru öll trygg
Ef það fór fram hjá einhverjum, þá voru sett neyðarlög í gær sem gerðu innlán að forgangskröfum, ef bankinn fer í þrot. Það þýðir í raun, m.v. 6m uppgjör LAIS, að 1.617ma innlán hafa forgangskröfu í 3.970ma eignir. Mikið rosalega hafa þeir tapað mikið á Q3 2008 ef þessar eignir duga ekki fyrir innlánum.
Ef það fellur 1 kr. á íslenska ríkið út af tryggingu innlána LAIS, þá skal ég hundur heita.
|
Ernst&Young tekur yfir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 22:31
Fjármálaráðherra vanhæfur líka?
Það er fullkomlega eðlilegt að leita til Seðlabanka um fyrirgreiðslu gegn tryggingum. Það kallast 'endurhverf viðskipti' eða Repo viðskipti og er gert á hverjum einasta degi um allan heim. Ef fjármálaráðherra veit ekki um þessi viðskipti er hann alvarlega vanhæfur!
Davíð Oddsson er einnig vanhæfur, ekki vegna þess að hann viti ekki hvað hann er að gera, heldur vegna þess að Seðlabankastjóri þarf að vera yfir allan vafa hafinn. Menn þurfa að treysta því algerlega að hann taki faglegar ákvarðanir. Það er ómögulegt í ljósi liðinna atburða. Ekki þarf að minna sérstaklega samskipti hans við Baug. Það gerir öll samskipti hans við Glitni 'grunsamleg'. Hann hefur þó einnig átt 'moment' vegna Kaupþings, t.d. þegar hann reyndi að fá landsmenn til gera innistæðuáhlaup á bankann í nóv 2003. Það sýnir svo rosalegt dómgreindarleysi að það er ótrúlegt. Sýnir að hann er tilbúinn að gera fáranlega hluti til að ná sér niður á 'óvinum' sínum. Ákvarðanir hans vegna tveggja að þrem stóru viðskiptabönkunum eru því sjálfkrafa vafasamar og Davíð vanhæfur sem Seðlabankastjóri.
Geir Haarde, hafðu nú manndóm í þér til að reka Davíð ASAP!
|
Átti að misnota Seðlabankann? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


